Ragnar Freyr útskrifaðist með BA gráðu í grafískri hönnun árið 2005 frá Listaháskóla Íslands og diplóma í kennslufræði árið 2009.
Ragnar hefur starfað sem grafískur hönnuður í tíu ár en stundað fagið á einn eða annan hátt síðan 1995. Frá útskrift 2005 hefur hann aðallega starfað sjálfstætt með nokkrum stuttum stoppum á auglýsingastofum landsins.
Í dag starfar Ragnar sem vef- og viðmótshönnuður hjá ísenska sprotafyrirtækinu gogoyoko.
Bjarni Helgason lauk mastersnámi í Media Arts & Communication Design frá Kent Institute of Art & Design í Bretlandi árið 2004. Þremur árum áður útskrifaðist hann sem grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands.
Bjarni hefur starfað við myndlist í átta ár og við grafíska hönnun undanfarin tíu ár. Hann hefur unnið hjá ýmsum auglýsingastofum en undanfarið hefur hann verið sjálfstætt starfandi hönnuður. Einnig hefur Bjarni verið stundakennari við Listaháskóla Íslands frá árinu 2004.
Bjarni nemur nú líffræði við Háskóla Íslands ásamt því að starfa við hönnun og myndlist.
