Hver er staðan?
Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan við skrifuðum hér síðast um HönnunarMars 2009. Stuttu eftir þær tökur lagðist verkefnið Upplausn því miður í dvala vegna anna og breytinga hjá báðum aðstandenum.
En nú er kominn tími til að taka upp þráðinn og ætlum við að gera okkar besta til þess að halda verkefninu við. Tökur munu hefjast aftur á næstu vikum þegar endurskipulagi verkefnisins hefur verið lokið.
Við förum kannski hægt en við ætlum ekki að stoppa.
Þangað til næst: Upplausn á Facebook og Upplausn á twitter.


